Kort & Dokumentar Filmskolen í Kaupmannahöfn ( KD&F ) býður upp á mesta framboð af námskeiðum í kvikmyndagerð í Danmörku.
K&DF býður upp á krefjandi byrjendanámskeið jafnt og námskeið yfir heilar námsannir. Þar á meðal:
Námskeið í heimildamyndagerð fyrir fagmenn
Lengri námskeið í leikstjórnun kvikmynda
Lengri námskeið í handritsgerð kvikmynda
Námskeið í hljóðvinnslu kvikmynda
Myndatöku- og klippinámskeiðin ná yfir styttri eða lengri tímabil. Nefna má námskeið í Final Cut pro, Pro Tools, After Effects, DVD Studio Pro, Sorensen Media Composer og Avid Xpress.
Einnig er hægt að taka sérhæfðari námskeið í auglýsingagerð, „visualiseringu“ í kvikmyndum, klippitækni og dramaturgi, svo dæmi séu nefnd.
Flestir af þeim er sækja námskeið Kort & Dokumentar Filmskolen velja að blanda saman hópnámskeiðum, einstaklingsnámskeiðum og eigin verkefnum í kvikmyndagerð.
K&DF er einkarekinn kvikmyndaskóli og er í nánum tenglsum við kvikmyndaiðnaðinn. Á mesta annatímanum eru nemendur skólans ca. 40 – 50 talsins. Aldursdreifing meðal nemenda er á bilinu 20 – 60 ár og flestir nemendur hafa einhverja reynslu af kvikmyndagerð og/eða starfa við hana að hluta til. Nemendur eru flestir frá Danmörku, en einnig sækja skólann nemendur frá Noregi, Svíþjóð, Íslandi og Færeyjum. Kennslan fer fram á dönsku, en sum af klippinámskeiðunum eru kennd á ensku.
K&DF er skóli fyrir metnaðargjarna nemendur sem vilja taka faglega krefjandi námskeið og öðlast meiri færni í kvikmyndagerð. Aðgangskröfur eru ekki formlegar, en nauðsynlegt er að ráðfæra sig við skólann um hvaða námskeið henta hverjum og einum best.
Hægt er að heimsækja og skoða skólann eftir samkomulagi. Fyrir þá sem koma lengra að, er reynt að svara flestum spurningum í tölvupósti.
Kennarar skólans koma úr kvikmyndaiðnaðinum og/eða starfa við kvikmyndagerð. Námskeiðin geta því verið mjög krefjandi og mikil áhersla er lögð á fagmennsku og persónulega þróun. Skólinn hefur það að sérstöku markmiði að aðstoða nemendum við framleiðslu á eigin verkefnum og tjáningu eigin hugmynda.
Um einkarekinn skóla er að ræða og veitir danska ríkið því venjulega ekki styrki til námsins. Nemendur geta sótt styrki til stéttarfélaga, vinnuveitenda, félagasamtaka eða einkarekinna styrktarsjóða á eigin vegum.
Nánari upplýsingar um K&DF má fá í síma +45 35 34 68 00 og í tölvupósti: info@filmkurser.dk
|